Geðlæknastofa HPJ

Ath. Þessi síða er einungis ætluð:

  1. Einstaklingum sem eru nú þegar í þjónustu stofunnar.
  2. Tilvísendum (Læknum, sálfræðingum, heilbrigðisstarfsfólki).

Ef þú passar ekki í þessa tvo flokka þá eru mikilvægar upplýsingar fyrir þig neðst á síðunni undir “Mikilvægt:”*

Ath. Krefst lykilorðs. Þennan tengil og lykilorð getur þú alltaf fundið í áminningarskilaboðunum (sms) frá stofunni.

Fyrir tilvísendur

Ef þú ert læknir eða sálfræðingur og ert að hugsa um að senda tilvísun til mín, sendu mér fyrst tölvupóst á hpj(att)hpj.is og ég sendi þér lykilorðið um hæl. Þegar þú ert með lykilorðið, smelltu þá á tengilinn hér fyrir neðan.

Ath. Öllum tilvísunum sem sendar eru rafrænt, sem og beiðnir eða fyrirspurning sem sendar eru í tölvupósti án þess farið er eftir tilvísunarferlinu sem lýst er hér á lokuðu svæði síðunnar (“Heilbrigðisstarfsmenn/Tilvísanir”), er sjálfkrafa hafnað.


Kær kveðja,

Hermann Páll Jónsson
Geðlæknir

26.10.2025



*Mikilvægar upplýsingar

Hér fyrir neðan eru mikilvægar upplýsingar fyrir þá sem eru ekki nú þegar í þjónustu stofunnar eða tilvísendur.
Ef þú ert að leita að tíma hjá geðlækni fyrir sjálfan þig eða fyrir einhvern þér nákominn, þá þarftu að leita fyrst til læknis eða sálfræðings og þeir geta svo sent tilvísun til hingað á stofuna ef það er metið svo að þörf sé á aðkomu geðlæknis.
Einungis er unnið út frá tilvísunum frá læknum og sálfræðingum.
Því miður er ekki mögulegt að svara fyrirspurnum frá öðrum en heilbrigðisstarfsfólki, hvorki i gegnum tölvupóst né í gegnum síma.

ATH: Ekki er tekið við málum sem varða ADHD nýgreiningar, þ.m.t.:
– mál sem hafa farið í gegnum uppvinnslu á sálfræðistofum og vantar aðkomu geðlæknis
– mál sem lúta að staðfestingu á adhd greiningu fullorðinna einstaklinga sem fengu adhd greiningu á barnsaldri
– mál sem lúta að staðfestingu erlendra greininga á adhd